Welcome to my world

08.11.2006 11:13:18 / Brynja

Ætla taka mér smá pásu í að blogga!!

Hæ  hæ ég ætla mér að taka smá pásu frá síðuni því ég nenni þessu ekki núna!!! Byrja aftur svona um jólin eða eitthvað svoleiðis og þá kanski með nýja síðu!!!!

kv. Brynja

» 4 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 11:41:21 / Brynja

Löng helgi byrjar á morgun...:D..!!!!!

Hæ hæ jamm ég er að verða soldi löt í þessu blogg rugli en þarf að fara verða duglegri en allaveg í gær þá setti ég inn nokkrar mynidir ( reyndar allar gamlar ) þær eru í dálknum myndir en annars þarf ég bara að fá mynda vélina hennar mömmu lánaða og taka einhverjar myndir hérna af fólkinu á Laugum. Svo held ég að einhver staðar neðst í gullkorn séu einhver ný gullkorn endilega kíkja á þetta.
Seinustu helgi komu Laugvetningar að keppa við okkur Lauganema í íþróttum og var það bara mjög gaman....við Lauga stelpurnar unnum Laugvetninga stelpurnar í reipitogi:haha::haha:
en allavega þá er Langa helgin að byrja á morgun og ætla ég að byrja helgina á því að fara í sumarbústað með familíjuni og svo kem ég í hólminn á Sunndaginn:D:D:D:D:D:D hlakka gg mikið til að sjá ykkur þvi svo hitti ég ykkur ekkert aftur fyrr en í jólafríinu.......

          en nenni ekki að blogga meira

                    ble ble

                       Brynja
 

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 11:26:30 / Brynja

Snjórinn kemur og fer á meðan Lauganemar spila félagsvist og renna sér í snjónum og aðrir gera snjókalla og snjóhús!!!!!

Hæ hæ jamm ég gerði þetta heljarinnar blogg í gær en nei datt það ekki bara allt út:(:(:(:evil::evil::evil: og svo ætlaði ég að blogga aftur en nennti því ekki þar sem ég var svo fúl því ég var sko að blogga á Mozilla firefox og gat ekki gert copy ef það myndi allt fara til fjandans eins og gerðist:evil:.

En allavega seinustu helgi þá fór ég heim í hólminn góða:D:D:D:D:D Fór heim á fimmtudeginum og var komin eitthvað á milli 23:00-23-30. Fór eiginlega bara beint að sofa en fór fyrst aðeins á msn;)

Föstudaginn þá vaknaði ég kl.09:25 þegar hún Bergdís hringdi í mig og sagði mér að koma mér niður í bakarí og auðvitað hoppaði ég á fætur og hljóp næstum út. Svo labbaði ég með henni upp í skóla og á leiðinni hittum við Sigga Benna og hann labbaði með okkur. Svo fór ég í íslensku og samfélagsfræði með 10.bekk sem var ágætt sat bara þarna og gerði ekki neitt. Svo fór ég upp á sjúkrahús að heimsækja fólk sem ég var að vinna hjá í sumar. Og í hádeginu um svona 13:00 þá fór ég í Borganes til Elínar og fékk far með Vilborgu. Þegar ég kom til Elínar þá fórum við í heitapottinn heima hjá henni:D:D:D svo fórum við að í bakaríið og svo löbbuðum við útum næstum allan bæ en Elín var að sýna mér helstu staðina í bænum og svona og leist mér bara ágætlega á Borganes. Svo um kvöldið fengum við pitzzu í matinn og eftir matinn var kominn tími fyrir okkur að gera okkur tilbúnar fyrir ballið á Skaganum með hljómsveitinni Spútnik:D:D:D:D:D Svo kom Hugrún Vinkona Elínar sem keypti handa okkur miðana;). Svo um rétt fyrir 21:30 skutlaði systir Elínar okkur í Hyrnuna því að þaðan fór rútan á Skagann. Þetta var lítil 11 manna rúta og vorum við 8 sem fórum með rútuni út á Skaga. Svo þegar á Skagan var komið þá þurftum við að bíða í 30mín eða lengur því að húsið opnaði ekki fyrr 22:30 og einhverjir fullir Skagastrákar voru eitthvað að leika sér að sleikja glerhurðina á skólanum8|8| Svo dönsuðum við ( Elín, Hugrún og ég ) allan tímann og skemmtum okkur mjög vel:D:D:D Svo þegar ballið var búið og við vorum að fara aftur í Borganes í þessari litlu 11 manna rútu þá vorum við 20 sem þurftum að komast og þá var okku bara troðið inní rútuna og þurftu Elín, ég og önnu stelpa að setja á gólfinu og voru nokkrir sem þurftu að setja ofan á öðrum. Svo þegar við ( Elín og ég ) komum heim til Elínar þá fórum við að horfa á mynd og fórum svo að sofa.

Við vöknuðum ekki fyrr en kl.13:00 á laugadeginum og fór ég þá að taka saman dóttið mitt og svona. Svo fengum við okkur að borða og eitthvað um 15:00 kom hún móðir mín að ná í mig og ég og Elín fórum í Bónus að versla aðeins. Svo fór ég heim í Hólminn og þegar ég kom fór ég bara aðeins að chilla og svo fór ég að keyra sem gekk bara vel ( allavega í seinna skiptið:$:$ ) og kíkti aðeins á körfuboltaleik hjá stelpunum í 9.-10.bekk.....Svo var heima bökuð pitzza í kvöldmatinn:P:P:D:D:D eftir kvöldmat fór ég svo út að labba með Bergdísi og ekki voru margir úti held bara ekki neinn. Við fórum á Bensó og keyptum okkur smá nammi og fórum svo heim til hennar að horfa á Titanic. Svo þegar ég var orðin gg þreitt þá fór ég heim að sofa.

Þá var kominn sunnudagur og tími til að fara aftur á Laugar:(:(:( mig langaði bara til að vera áfram heima í svona nokkradaga en næst þegar ég kem heim þá verða það 4dagar. Við lögðum af stað rétt eftir hádegi og komum við í sveitin en vorum komnar á laugar fyrir kvöldkaffi.

Svo hefur bara snjóað hérna fyrir norðan og má segja að veturinn sé kominn með öllum sínum kulda. En á mánudagskvöldið þá tóku ég, Elín og Eva smá flipp útaf því það var svo mikill snjór að við redduðum okkur pokum og fórum að renna okkur í snjónum og það var gg stuð:D:D:D:D Svala kom líka með en hún var myndavéla maður.

Svo er það auðvitað bara læra og allt það vanalega.

En í gær átti Sæmundur afmæli en Sæmundur er nafnið á kvöldkaffinu. Fyrst var spiluð félagsvist og hún Elín var hæst af konunum og Heiðar hæstur af körlunum ég segi bara til hamingju með það;):):D

þá held ég það hafi ekki verið meira og vonandi höfðuð þið gaman af því að lesa þetta og endilega skrifa í skoðanir. Þetta á þá aðalega um hana systir mína sem er alltaf að byðja um blogg en helst allir að skrifa í skoðanir.

                ble ble

                  Brynja


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 13:26:32 / Brynja

Prófin byrjuð.....!!....( bara 2 dagar )

Hæ hæ  þá eru prófin byrjuð og ég fór í tvö próf í morgun.......fyrst kl 09:00-10:30 í félagsfræði og svo kl. 10:45-12:15 í  Náttúrufræði. Hef ekki mikið að segja eins og vanalega því þið vitið öll hvað ég er að gera hérna læra og svo þegar ég er ekki að læra þá er ég bara einhverstaðar með stelpunum.
Er svo að koma heim á fimmtudaginn og ég get ekki beðið.
Held ég fari bara að læra fyrir prófin sem eru á morgun Íslenska og Enska.

                  ble ble
 
                      Brynja

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 21:57:59 / Brynja

Prófin í næstu viku!!!! ( 8dagar )

Hæ hæ þá er komin tími til að blogga...........:D Hef ekki verið að gera mikið annað en að læra og fara í sund.
Í gær var freaky hairday og þá voru flest allir með svona öðruvísi hárgreiðslur en vanalega og stákarnir mistu sig aðeins með rakvélina....:haha: allgjör snild samt hjá allavega einum sem var með broskall á hnakkanum en eins og til dæmis sumir sem rökuðu bara hluta af hárinu ( sem var ekki flott ) það kallast að vera ruglaður............
Sko dagurinn í gær var hlátursdagurinn mikli hjá mér eða eitthvað álíka því að ég gerði lítið annað en að hlæja........og svo byrjaði líka að snjóa í gær og það var bara snjór yfir öllu en samt ekki skaflar en það fór allur snjór svo aftur í dag.............

Held það hafi ekki verið meira

            ætla að fara í kvöldkaffi
 
                           ble ble

                                 Brynja

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.10.2006 13:56:23 / Brynja

Helgin í hólminum!!!!!!!!!!!!

Hæ hæ þá er ég bara komin aftur á Laugar og ælta að segja frá þessari yndislegu helgi í Hólminum.

Fimmtudagur 28.September

Kom heim um tíuleitið og hringdi í Bergdísi ( eins og þið vitið laug ég að henni að ég kæmi ekki fyrr en 29.sept. ) Svo náði ég í hana og við fórum aðeins heim til Beggu systur og þar var pabbi að passa litlu sofandi dúllurnar mínar:D:D:D:D Svo fórum við út að labba. Byrjuðum á því að fara á Bensó og þar sat Trausti og ég talaði aðeins við hann og svo fórum við Bergdís út að labba og það var sko svo mikill vindur að við löbbuðum bara út að Bónus og fórum við á video leiguna og Bergdís panntaði Bandidas. Svo fór ég bara heim til Beggu ( ég gisti þar ) borðaði snakk og horfði aðeins að sjónvarpið og fór svo bara að sofa.

Föstudagur 29.september

Vaknaði um tólfleitið fékk mér að borða og horfði á sjónvarpið svo um eitt að verða hálf tvö fór ég á fætur og fékk hana systur mína til að skutla mér upp á sjúkrahús og þar hitti ég Stínu.

Svo var ég bara heima hjá Beggu og var eitthvað í tölvuni og horfa á Tv. Svo hringir Berglind og ég æi byð hana að koma á msn............svo eftir svona 10-15 mín seinna er bankað og stendur þá ekki berglind fyrir utan hurðina. Svo um kvöldið horfðum við á Bandidas með Bergdísi, Berglindi ( vorum heima hjá henni ), Lilju, Nonna og Alex. Svo eftir myndina fórum við aðeins að labba en ég var að drepast í hausnum ( var hálf veik ) og fór þess vegna heim.

Laugardagurinn 30.september

Vaknaði eitthvað á milli tólf og eitt. Var á náttfötunum til eitthvað fjögur hálf fimm þegar ég fór í bað:D:D:D:D:D:D:D:D var örugglega 30-40mín í baði og ætlaði svo til Berglindar en nennti ekki út. Svo hringdi ég í Sigga Benna og bað hann að hitta mig um kvöldið af þvi að ég væri að fara daginn eftir.

Svo var grill kjöt í matinn:D:D:D:D:D geðveikt gott. Svo kom Siggi og við horfðum aðeins á Tv-ið og fengum okkur eftirrétt og fórum svo út að hitta allt crewið. Svo fór ég, Berglind, Siggi, Kristjana, Alex og Bergdís á Narfeyrastofu að fá okkur köku og kakó:D:D:D:D:D:D:D:D.........svo komu Lilja og Nonni þegar við vorum komin aftur út að labba en svo þurfti Siggi að fara. Svo enduðum við kvöldið með því að ég, Bergdís, Berglind, Nonni og Alex fórum upp á súgandisey að horfa á norðurljósin og stjörnurnar og það var geðveikt flott:D:D:D og við sáum karlsvagninn ( held að það heiti það ).....Svo var komin tími til að fara heim þó svo mig langaði að vera lengur en mér var orðið soldið kalt og helv......hausverkurinn var kominn aftur...........Þegar ég kom heim voru Begga og Maggi að horfa á Beverly hills og ég horfði á einn þátt og þá fórum við að sofa..........

Sunnudagurinn 1.október

Sá ljóti dagur þvi að þá þurfti ég að fara aftur á Laugar sem mig langaði ekkert til að gera mig langaði ( og langar ) bara að vera heima ( sakna ykkar geðveikt en ég kem heim eftir 16daga ). Vaknaði fyrst um sjö þá fékk ég ljótt sms frá símanum um að það að ég væri ekki lengur með símavini. Svo hringdi Andrea um hálf ellefu ( það var reyndar áríðandi ). Svo um tólf vakti systir mín mig til að spurja hvort ég vildi ekki fara með Birgittu út á róló ( sú var bjartsýn ) en ég ætlaði fyrst að fá mér að borða en svo var klukkan bara orðin eitt og þá var kominn svefn tími fyrir Birgittu. Svo útaf því hún vildi ekki sofna þá fórum við á rúntinn. Fórum út í búð og þar hitti ég Sigga og spjallaði aðeins við hann. Svo þegar við komum aftur heim fór ég að glápa á imbann en þurfti svo að fara pakka.......Siggi ætlaði að koma til mín áður en ég færi en því miður komst hann ekki ( það er svona að búa út í sveit )..........Svo þegar klukkan var orðin fimm og ég búin að pakka skutlaði systir mín mér út í X-ið og ég kvaddi Bergdísi, Lilju og Nonna ( en þau eru að mála gg flott þar ). Svo náðum við systur í pabba og svo Vilborgu. Svo um sjö vorum við í brú og þar voru Elín og Andrea. Begga skutlaði okkur í Staðarskála þar sem hún móðir mín var. Svo lá leið okkar á Laugar en við komum við í Varmahlíð að borða. Það kom einhver stelpa með okkur sem ég man ekkert hvað heitir á Akureyri og svo á Akureyri beið hún María eftir okkur. En vegna þess að við vorum seint á ferðinni og það var búið að loka vistunum þegar við komum, þá var ég búin að hringja í húsbóndann.

Núna er ég bara í tíma en eina sem ég er búin að vera gera síðan ég kom hingað aftur er að læra og vera í skólanum og vera með stelpunum ( þetta vanalega )...

          Held bara að þetta sé komið

                 Ble ble

                       Brynja The brengl sem átti góða helgi í Hólminum:D:D:D:D:D:D


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 16:46:32 / Brynja

Komin heim!!!!!!!

Hæ hæ þá er ég loksins komin heim:D:D:D:D:D:D:D Kom heim í gær kvöld. Ég vaknaði og fór í skólan og í tvem seinustu tímunum gat ég eingan veginn ( þurfum ekkert að tala um það að ég sofnaði í dönsku :$:$:$:$8|8|:S) einbeitt mér og var löngu búin að til kynna kennaranum það og svo var okkur hleypt 15mín fyrr úr tímanum:D:D:D:D:D:D svo fór ég upp á herbergi að hringja í mömmu og þá var hún bara komin:D:D:D þannig ég fór að finna allar stelpurnar ( Elín, Andrea, María og Vilborg ) sem ætluðu með mér og þegar allir voru komnir þá gátum við farið:D:D:D við stoppuðum aðeins á Akureyri, við stelpurnar fórum á glerártorg og fyrsta sem við gerðum var að fá okkur að borða. María og Elín urðu eftir á Akureyri ( María á heima á Akureyri en Elín fékk far með konu sem hún þekkir frá Akureyri til Borganes ) svo kom líka Katrín með okkur frá Akureyri. Ég og Vilborg hámuðum í okkur einum stjörnupopp-poka og helling af nammi:D:D:D:D:D svo hentum við Katrínu og Andreu út á leiðinni ( eða kanski ekki alveg ). Svo þegar við komum í sveitina þá fengum við lambalæri. Svo héldum við áfram og komum heim rétt fyrir 22:00:D:D:D:D:D:D:D:D

Sko á leiðinni þá hringdi ég í Bergdísi og sagði henni að ég kæmi ekki heim fyrr en í dag ( föstudag ) og hún trúði því og svo þegar ég kom heim þá hringdi ég aftur

ég: hæ

Bergdís: hæ

ég: mér leiðist ógeðslega mikið hef ekkert að gera og netið hérna á laugum í fokki

Bergdís: ææ

ég: mig langar út að labba, nenniru út að labba??

Bergdís: HA?

ég: viltu koma út að labba???

Bergdís: Ha!!!!!!!!!!!!!!!!!!

ég: viltu koma út að labba????

Bergdís: þú ert í Stykkishólmi.

ég : Nei ég er á laugum!!

Bergdís : hvernig á ég þá koma út að labba með þér??????

ég : hahahahahahahaa.........ég er í Stykkishólmi!!........hahaha.

 

Svo í dag þá hringdi Berglind í mig og ég bað hana koma bara á msn og næsta sem ég veit það bankar hún bara heima hjá systur minni ( hún sem ætlaði ekkert í hólminn ) ég hélt ég mundi ekki hitta hana fyrr en í október.

Þannig það voru allir að plata alla til dæmis líka hún Vilborg. Hún sagði Árna að hún kæmi ekki fyrr en föstudaginn og hún var búin að vera ljúga síðan á laugardaginn og þegar hann sá hana þá misti hann næstum andlitið...hehehehehehe.....

 

              þá held ég að þetta sé allt komið

                          ble ble

                               Brynja


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 22:39:07 / Brynja

7 dagar þanngað til ég hitti ykkur elskurna mínar...:)...:D...;)

Hæ hæ já þá er bara vika í það að ég komi heim í Hólminn:D:D:D:D:D:D:D Jamm mig hlakkar allavega geðveikt til að hitta ykkur en ég veit auðvitað ekki hvort ykkur hlakki til en ég bara vona það og miðað við alla sem ég hef heyrt í eða talað við á msn þá bíða allir spenntir:D:D:D:D:D:D:D:D. Núna í auknablikinu hef ég ekki mikið að gera er bara eitthvað að blogga um það hvað ég sakna ykkar geðveikt:cry: en allavega þá er ekki langt í að ég kem heim:D:D:D:D:D. Búin að vera gera ekkert annað en að læra, hanga með stelpunum, fara í sund, horfa á Tv og í gær var ég veik:$ og fór því ekki í skólan en í morgun dreif ég mig á fætur og fór í skólann og svo er einn kennarinn ( sem kennir Dönsku og Félagsfræði ) búin að vera veik alla vikuna og því hefur ekki verið mikið að læra ( allavega aðeins minna en vanalega ). En heyriði mig núna er ég að pæla hætta þessu væli og fara í heimsókn til Svölu og Evu.

    ble ble

         Brynja


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.09.2006 17:38:59 / Brynja

Akureyri! Til hamingju með afmælið Siggi Benni.....:):D

Hæ hæ já þá er þessi helgi búin. Ég fór á Akureyri um helgina með Heiðu, Elínu og Maríu. En allavega þá fórum við með rútuni á föstudaginn frá Laugabæ kl.18:10 ( eitthvað svo leiðis ). Þegar við komum til Ak þá pöntuðum við okkur Taxa og fórum heim til Heiðu. Svo um níu leitið fórum við á Körfubolta leik með skallagrím. Svo fórum við bara eitthvað að rölta og svo fórum við heim til Heiðu. Fórum að horfa á mynd og ég sofnaði yfir henni þannig ég fór bara að sofa. Svo daginn eftir vöknuðum við eitthvað um eitt, fengum okkur að borða og fórum svo niður í Glerártorg að versla og ég keypti geðveikt flottan kjól ( bleikur ). Svo fórum við heim til Heiðu fengum okkur að borða og svo fórum við allar í bíó kl.20:00 á geðveika mynd sem heitir Step up ég mæli eindreigið með því að þið sjáið þessa mynd. Svo eftir myndina pöntuðum við okkur Taxa og fórum heim til Heiðu. Þar vorum við í geðveiku stuði að hlusta á tónlist og fór ég svo sofa. Svo í hádeginu vöknuðum við og fengum okkur pitzzu. Svo kom María og kl.15:30 skutlaði mamma Heiðu okkur þangað sem rútan átti að fara og þegar mamma hennar Heiðu var farin komumst við að því að það færi engin rúta til Lauga í dag:evil:. Svo að við löbbuðum niður í bæ og Elín reddaði okkur endanlega með því að fá frænda sinn til að skutla okkur annars hefðum við ekki komist hingað fyrr en 9:45 í fyrra málið. En nú sit ég bara upp í herbergi í tölvuni að blogga.

            Held það hafi ekki verið meira

                     ble ble

                           Brynja Ýr

 ps. Siggi Benni á afmæli í dag og vonandi áttu bara góðan dag.


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 15:06:15 / Brynja

Laugar!

Hæ hæ þá held ég það sé komin tími til að skrifa smá blogg um þessa skóla veru mína á laugum. Ég kom hingað á laugar á þriðjudaginn í seinustu viku ( 29.ágúst ). Daginn eftir var fyrsti skóla dagurinn og sko þau sem eru á 3 og 4 ári þau eru böðlar og meiga láta okkur busana gera allt fyrir sig til dæmis þá var ég látin ná í mat fyrir nokkra og þrisvar þurfti ég að þrífa mat salinn. Svo þegar böðlarnir voru að sýna okkur skólann þá kinntist ég stelpu úr Borgarnesi sem heitir Elín og svo kinntist ég líka herbergisfélaganum hennar sem heitir Andrea og svo heitir sú sem er með mér í herbergi Íris. á miðvikudagskvöldinu var smá kvöld leikfimi. svo kl 07:00 vorum við vakin í morgun leikfimi. En allavega svo á föstudaginn var Busa víxlan. Í seinasta tímanum þá komu böðlarnir og ráku okkur út og við fengum 4mín til að skipta um föt. Svo vorum við öll látin standa upp við hús vegg með ennið í vegginn, þá var nafna kall og þegar það var sagt nafnið manns átti maður að leggjast í grasið með hausinn niður og rétt áður en nafnið mitt var sagt var komið með vatnsbyssu og sprautað í dá góðann tíma á mig. Svo þegar allir voru lagstir niður þá áttum við að standa upp labba tíu skref og fara niður á hnén og vera í beinni línu, þá var byrjað að setja helling af ógeði í hárið á okkur til dæmis Síróp, hrásalat, tannkrem, jarðaberjagraut, kjötfars eða eitthvað svoleiðis, hellt á okkur hveiti og kakó og fleira. Svo fórum við í geggnum svona braut sem var að skríða í grasinu, velta sér upp úr polli og hoppa í dekk sem voru ofan í polli. Svo var okkur öllum troðið inn í smók ( staðurinn sem fólk má reykja á ) þar voru við látin hoppa og syngja lagið ÉG VEIT UM LAG SEM FER Í TAUGARNAR Á MÉR, TAUGARNAR Á MÉR TAUGARNAR Á MÉR OG GETTU HVAÐ ÞAÐ ER. þar var líka sprautað á okkur ískalt vatn. Svo lá leið okkar út að tjörn, þar vorum við látin sverja eið og drekka ógeðsdrykk og svo rúsínan í pulsuendanum : við vorum látin hoppa eða sumum kastað út í ískalda tjörnina ( ég hoppaði ) og látin synda yfir á hinn bakkann og þegar ég kom upp úr var mér svo kalt að ég fann ekki fyrir kuldanum lengur. Svo allir þeir sem voru með einhvern kjaft eða gerðu ekki það sem þeir áttu að gera fengu auka ferð í tjörnina ( ég var ekki í þeim hópi ). En annars held ég að það hafi ekki verið mikið meira nema að ég kem kanski heim í næstu viku.

               ble ble

                  Brynja Lauganemi


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.08.2006 15:37:37 / Brynja

Ekki á morgun heldur hinn....:'(:(:):D

Hæ hæ ja þá fer allveg að koma að þessu ég er að fara norður eftir tvo daga eða eitthvað svoleiðis. En allavega þá hefur helgin mín verið ágæt, var í reykjarvík á föstudaginn og hitti Berglindi ( við fórum á smá búðarölt ) og í gær var ég að vinna og um kvöldið fór ég út með krökkunum en svo í morgun var ég að pakka niður ( eða byrja að pakka niður ) og svo þurfti ég aðeins að vinna eða ganga frá og skúra og svoleiðis. En annars hef ég ekki mikið að segja nema ég á örugglega eftir að sakna ykkar og þið vonandi eftir að sakna mín.

                Ble ble    

           Cute

                       Brynja Ýr   


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 17:11:13 / Brynja

Þriðjudagurinn 22.ágúst ( 7 dagar í skólann )

Hæ hæ jamm þá eru Dönsku dagarnir búnir og ég skemmti mér mjög vel ( þrátt fyrir ömurlega dönsku daga ) það var eingin almennileg dagskrá og ekkert fyrir unglinga ( nema eitt ball á laugardagkvöldinu ) og heldur ekkert fyrir litlu börnin. En ég var reyndar líka að vinna um helgina en ég fór samt ekki snemma að sofa eða neitt svoleiðis, ég var ekkert voðalega þreytt í vinnuni en var samt að drepast úr hausverk og magaverkjum og svoleiðis í gær og fór því heim veik og svaf til tvö, fór þá að horfa á tv og dagurinn fór bara í að vera inni og reyna jafna sig til að geta farið í vinnuna í morgun ( ætlaði að vera komin heim um 3 leitið en þá stífluðust öll niðurföllin í eldhúsinu og ég var búin um 4 en það skipti svo sem engu máli að ég var aðeins lengur en ég ætlaði mér. Ég held það hafi ekki verið meira.

                    ble ble

                       Brynja  


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.08.2006 15:36:02 / Brynja

Mobile

Hæ hæ bara láta vita ad ég er ad blogga úr símanum mínum og setti eina mynd med (vonandi kom myndin). En ég er núna á selfossi og fór ad hitta Agnesi áðan. En ég er ad fara í galtalæk ad skemmta mér (við komum þanngað í gær).vonandi verður veðrið almenilegt um helgina en ég keypti mér gúmmí skó áðan ef að það á eftir að rigna mikið (það er rigning núna) Takið því rólega í umferðinni og öllu öðru um helgina Kv. Brynja þÿNeon Butterf.jpeÿý

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.07.2006 21:50:33 / Brynja

31dagur í skólann

Hæ hæ í dag er akkurat mánuður í setningu skólans vá hvað þetta líður hratt, það er að koma ágúst mánuður. Sumarið ( ef að það er hægt að kalla það sumar ) er að verða búið og manni finnst það bara vera ný byrjað. Ég hef reyndar ekki mikið að segja. Ég hef bara verið að vinna, slappa af og fara út á röltið. Það er allveg að koma verslunarmannarhelgin en hún er eftir viku ( næsta helgi ) og ég ætla bara í galtalæk eins og vanalega ( langar geðveikt mikið að fara á þjóðhátíð ).

         Æ ég nenni ekki að blogga meira í þetta skiptið

                         ble ble

                                 Brynja


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 17:28:42 / Brynja

tíminn líður hratt:S....!

Hæ hæ það er komin 23.júlí og ekki nema aðeins meira en mánuður þangað til ég fer í skólann fyrir norðan. ekki þessa helgi heldur seinustu helgi fór ég í sumarbústað með allir fjölskylduni rétt hjá Blönduósi. Á föstudeginum ( 14.júlí ) fórum við í sumarbústaðinn og um kveldið fór ég með stelpu sem heitir sigurveig og vinkonum hennar á ball ( það var einhver hátíð á Blönduósi ). Hljómsveitirnar sem spiluðu voru mömmu strákar og svo hljómsveitinn hans Ingós ( idol ). Ég skemmti mér vel í sumarbústaðinum en svo kom sunnudagur og þá var kominn tími fyrir mig til að fara heim í hólminn en ég þurfti að mæta í vinnu annað en aðrir í fjölskylduni sem voru barasta alla vikuna ( það er að segja allir nema ég og Doddi ). Ég var bara ein heima alla vikun með bæði húsið heima og húsið þeirra Beggu og Magga ( haha það voru ekki allir sem vissu það ;). Ég eldaði meira segja sjálf ( án þess að kveikja í húsinu ). Á fimmtudaginn bauð ég Berglindi í mat til mín en akkurat þegar við ætluðum að byrja elda fengum við gest inn í húsið sem við vildum ekki hafa sem var geitungur og eftir mikið öskur og rök ræður um hver átti að drepa kvikindið tók Siggi Benni það að sér að drepa geitunginn. Svo loksins gátum við Berglind eldað matinn okkar ( pasta ) sem var mjög gott. Eftir matinn fórum við út með Bergdísi, Nonna, Alex held það hafi ekki verið fleiri. Svo endaði kvöldið á að horfa á myndina The Hills Have Eyes ( held þetta sé rétt skrifað ) en þessi mynd er bara blóð bað ( en hún er samt góð sko þrátt fyrir hvað hún er ógeðsleg ). Svo hef ég bara verið að vinna, Borða, Horfa á Tv og fara út á kvöldin með vinum mínum.

             Held að það hafi ekki verið meira

                            Ble ble

                                Brynja


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti